Lýsing
Peysa
Bolur og ermar eru prjónuð í hring. Við handveg eru lykkjur af ermum og bol sameinaðar á einn prjón og axlastykki prjónað í hring. Umferð byrjar í vinstri hlið á bol en á axlastykki byrjar umferð á samskeytum bols og ermar , vinstra megin á baki.
Hneppt peysa
Bolur og ermar eru prjónuð í hring. Við handveg eru lykkjur af ermum og bol sameinaðar á einn prjón og axlastykki prjónað í hring. Umferð byrjar og endar í brugðinni lykkju á miðjum bol að framan.