Lýsing
Bolur og ermar eru prjónuð í hring. Við handveg eru lykkjur af ermum og bol sameinaðar á einn prjón og axlastykki prjónað í hring. Umferð byrjar á vinstri hlið á bol en á axlastykki byrjar umferð á samskeytum bols og ermar vinstra megin á baki.