Níu sinnum taflan finnst mér fallegasta margföldunartaflan, eins og tveir langir, andstæðir þríhyrningar eða ljós sem rennur í gagnstæðar áttir. Munstrið gengur upp í 9.
Bolur og ermar eru prjónuð í hring. Við handveg eru lykkjur af ermum og bol sameinaðar á einn prjón og axlastykki prjónað í hring. Umferð byrjar í vinstri hlið á bol en á samskeytum bols og ermar vinstra megin á baki.