Lýsing
Peysan er með beinum ¾ ermum og er örlítið víðari að neðan en við handveg. Hálsmálið er einnig víðara en á „venjulegum“ peysum. Bolur og ermar eru prjónuð í hring. Við handveg eru lykkjur af bol og ermum sameinaðar á einn prjón og axlastykki prjónað í hring. Umferð byrjar og endar á brugðinni lykkju á miðjum bol.