Lýsing
Bolur og ermar eru prjónuð í hring. Við handveg eru lykkjur af ermum og bol sameinaðar á einn prjón og axlastykki prjónað í hring. Umf byrjar í vinstri hlið á bol en á axlastykki byrjar umf á samskeytum bols og ermar, vinstra megin á baki. Einbandið er prjónað með sömu prjónastærð og Léttlopinn, gætið þessa að prjóna Einbandið ekki of laust.