Lýsing
Peysan er prjónuð í hring frá hálsi og niður úr einföldu Einbandi nema kantur neðst á bol og efst og neðst á ermum sem er prjónaður úr tvöföldu Einbandi. Kraginn er prjónaður eftir á, fram og til baka úr tvöföldu Einbandi. Peysan er frekar víð í sniði og er síðari að aftan en framan.