Lýsing
Bolur og ermar eru prjónuð úr tvöföldum Plötulopa í hring. Best er að prjóna beint upp úr plötunum eða vinda saman 2 liti í hæfilegu magni. Við handveg eru lykkjur af ermum og bol sameinaðar á einn prjón og axlastykki prjónað í hring. Úrtökur prjónaðar eftir teikningu.